| |
Christina
Sunley
Freyjuginning
er ný skáldsaga sem Bókafélagið Ugla gaf út fyrir jólin. Höfundurinn,
Christina Sunley, býr á vesturströnd Bandaríkjanna. Bókin fjallar um Freyju,
sem elst upp í dæmigerðu bandarísku úthverfi. En á sumrin
heimsækir hún ættingja sína í Gimli í Kanada.
Christina er nefnilega af
íslenskum ættum. Afi hennar var Ólafur Björnsson læknir í
Winnipeg (fór vestur 1876) og amma hennar Sigríður Elínborg
Jónsdóttir. Í Gimli kynnist hún Birdie frænku sinni sem er
í senn hrífandi og ógnvekjandi. Birdie opnar henni framandi heim
íslensku forfeðranna. Loks kemur að því að Freyja heldur á vit
forfeðranna – með óvæntum endalokum.
Þetta er áleitin og
æsispennandi skáldsaga. Í bókinni er skyggnst inn í íslenskan
menningarheim frá sjónarhóli fólksins sem yfirgaf
Ísland undir lok nítjándu aldar en varðveitti íslenska
menningu fjarri
ættjörðinni. Freyjuginning kom út vestanhafs fyrr
á þessu ári og hefur fengið frábærar viðtökur.
Rætt var við höfundinn í
Morgunblaðinu 16. desember 2009 (8).
 |
|
Freyjuginning.
Christina Sunley.
Lögberg-Heimskringla:
„Freyjuginning er svo trúverðug og sannfærandi að
maður stendur á öndinni.“
Bryndís Schram,
Pressan.is,
14.12.2009:
8
„Þetta er æsispennandi saga og mikið gleðiefni, að hún skuli hafa verið þýdd
á íslensku. Hún á erindi við okkur, þessi bók. Hún gefur okkur innsýn í líf
Íslendinga á fjarlægum slóðum rúmri öld eftir að þeir flúðu heimalandið.“
Kristín Ólafs,
Eyjan.is,
15.12.2009:
„... verkið er djúpt, áhugavert og víðfemt.“
380 bls.
2.490 kr.
Kaupa

|
|
|

Christina Sunley rithöfundur.
|
|